Succell News Detail

13.1.2012

Komdu í H3 laun í hýsingu!

Síðan 1987 hafa mörg fyritæki notast við H2 laun (oftast kallað H-laun) frá Tölvumiðlun. Eins og gengur og gerist í lífinu þá hefur umhverfið breyst eins og væntingar og kröfur til launakerfa. H3 laun uppfyllir þessar nýjar kröfur og væntingar.

Ekkert stofngjald!

H2 laun notendur þurfa ekki að borga stofngjald fyrir H3 laun heldur eingöngu fyrir vinnuna við að koma uppfærslunni inn. H3 laun keyrir á gagnagrunni sem gerir það að verkum að notendur fá miklu betri og ítarlegri skýrslur og betri aðgang að launagögnum í þægilegu og nútímalegu viðmóti.


Helstu kostir H3 Laun umfram eldra kerfi:


  • Öflugar aðgangsstýringar gera mögulegt að skipta verkefnum á milli stafsmanna og veita stjórnendum aðgang að launagögnum undirmanna sinna.
  • Kostnaður og réttindi eru brotin niður á starf og því er hægt er að sjá áramótastöðu í hverju starfi fyrir sig.
  • Hægt er að taka út skýrslur óháð áramótum.
  • Hægt er að taka fyrirspurnir mjög auðveldlega úr í Excel og PDF.
  • Fjöldi þrepa í launatöflum er ótakmarkaður. 
  • Launaseðill þarfnast ekki forprentaðra eyðublaða heldur er keyrður t.d út á bréfsefni fyrirtækisins.
  • Ef launagreiðandi er áskrifandi að þjóðskrá er hægt að tengja hana við kerfið.
  • Rafrænar skilagreinar

Ítarleg kerfislýsing á H3 laun má finna hér.


Kostir við hýsingarþjónusta:

  • Í hýsingu liggja gögnin hjá Tölvumiðlun og eru afrituð reglulega með fullkomnustu tækni.
  • Launagögn eru varin fyrir öllum aðilum sem ekki mega komast í þau en oft er erfitt að verja gögn fyrir tæknifólki sem og öðrum aðilum. Í hýsingarumhverfi Tölvumiðlunar er tryggt að launagögn eru aðeins aðgengileg þeim sem til þess hafa heimild.
  • Hreyfanleiki: ekki þarf að flytja kerfið þegar fyrirtækið flytur eða endurnýjar tölvubúnað, hægt að komast að gögnunum þaðan sem þörfin er á hverjum tíma.
  • Meira öryggi – góðar aðgangsstýringar.
  • Meiri þjónustu, nýjar útgáfur eru settar inn af starfsmönnum Tölvumiðlunar og grunntöflur s.s. skatthlutföll, bankar og póstnúmer eru í okkar umsjá.

Logos

Agile Microsoft Oracle Carestream